Dansmyndakvöld í Tjarnarbíói
fimmtudagur, 10. maí 2012Á undanförnum 7 vikum hafa nemendur á öðru ári dansbrautar Leiklistar og Dansdeildar LHÍ verið á dansmynda námskeiði undir handleiðslu Helenar Jónsdóttur danshöfunds og Hálfdáns Theodórssonar kvikmyndagerðarmanns. Nemendur hafa verið að vinna að eigin dansmynd þar sem lögð er áhersla á sköpunarferlið allt frá hugmyndavinnu og handritsgerð til klippingar og lokafrágangs.
Nemendur munu sýna myndir sínar í Tjarnarbíói föstudaginn 11.mai kl. 20.