Alþjóðlegi dansdagurinn, 29. apríl

föstudagur, 27. apríl 2012

Í tilefni alþjóðlega dansdagsins, sunnudaginn 29. apríl stendur FÍLD fyrir opnu húsi í Tjarnarbíó þar sem skoða má „pop-up” safn íslenskrar danssögu: Upplýsingar um íslenskan listdans, dansstofnanir og dansskóla hanga uppá veggjum í anddyri, ásamt videobrotum á sjónvarpsskjám. Nemendur frá 4 listdansskólum sýna atriði milli kl 14 & 17 og milli kl 17 & 19 mun atvinnufólkið eiga sviðið með brotum úr verkum sínum og kynningu á Dansverkstæði og Reykjavik Dancefestival.

Klukkan 19 verður svo sýnd verðlauna heimildamyndin „Ladies and gentlemen over 65” eftir Pinu Bausch. Sjá nánari dagskrá á http://dance.is

Alþjóðlegi dansdagurinn 29.apríl var kynntur til sögunnar árið 1982 af Alþjóða leikhússtofnuninni (ITI) innan UNESCO og á því fjörutíu ára afmæli á þessu ári. Markmið dagsins er að auka sýnileika dansins í samfélagi okkar, sýna fram á mikilvægi hans og hvetja stjórnvöld til þess að veita dansinum þann stuðning sem honum ber á öllum stigum skólakerfisins. Dansdagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur um heim allan síðan 1982 og á hverju ári er fengin mikilsmetinn aðili úr dansheiminum til þess að skrifa ávarp/skilaboð dansdagsins hverju sinni.

Skilaboð alþjóða dansdagsins 2012 eftir Sidi Larbi Cherkaoui:

Fögnum hreyfiafli lífsins

Í aldanna rás er það jafnan listin sem lifir. Listin virðist vera arfleifð kynslóðanna - hvort sem um er að ræða byggingar, bækur, málverk eða tónlist. Eða hreyfingu, dans. Ég lít því á dansinn sem hina eiginlegu sögustund, enda tengist hann iðulega nýliðnum tíma og er sannarlega list augnabliksins.

Dansinn virðist einnig ná út yfir þau landamæri sem afmarka ýmsar aðrar listgreinar. Ólík stílbrögð geta reynst vera takmarkandi, en lífið streymir áfram, óbeislað og síbreytilegt: skyndilega rennur þetta allt í einn farveg. Allt rennur saman, áreynslulaust og dansinn finnur sér sína leið í núinu, sem tekur stöðugum breytingum.

Ég lít svo á að okkur beri að standa vörð um danslistina sem eitt heiðarlegasta tjáningarformið, því í hvert sinn sem fólk dansar – í balletsýningu, hip-hop, í nýstárlegri samtímasýningu, eða sleppir fram af sér beislinu á diskóteki, þá eru yfirleitt engar lygar í spilinu, fólk setur ekki upp grímu. Fólk speglar sig sífellt hvert í öðru, en þegar það dansar, held ég að það sé einfaldlega uppnumið af einlægni augnabliksins.

Okkur gengur aldrei betur að skynja tilfinningar annarra, hugsanir þeirra og afl en með því að hreyfa okkur eins og þau, hreyfa okkur í félagi við aðra og fylgjast með hreyfingum þeirra um leið. Þannig öðlumst við skilning á samferðamönnum okkar.

Hver einasta danssýning er í mínum huga sönnun þess að við búum í samfélagi, að við getum gefið hvert öðru frelsi og tíma. Það vill stundum gleymast, en töfrar danssýningarinnar felast fyrst og fremst í sameiginlegri upplifun fólks sem situr hlið við hlið. Sýningin er ekki einkamál hvers og eins, áhorfanda, hún er afar félagsleg athöfn. Við komum saman í þeim tilgangi að taka þátt í viðburðinum, upplifa sama augnablikið.

Ég vona að við eigum öll eftir að dansa mikið á árinu 2012. Ekki til þess að gleyma vandamálum liðins árs, heldur til að takast á við þau á skapandi hátt, dansa í kringum þau, finna leið til að tengjast hvert öðru og veröldinni sem við búum; taka þátt í lífinu og hinu eilífa hreyfiafli þess. Dönsum til þess að finna einlægnina og leiðir til þess að miðla henni, velta henni fyrir okkur og fagna.

(Þýðing Bjarni Jónsson, leikskáld og þýðandi)

(Í ár er ávarpið skrifað af hinum belgísk/marókkóska Sidi Larbi Cherkaoui en hans frumraun sem danshöfundur var árið 1999 í söngleiknum Anonymous Society byggt á lögum vísnasöngvarans Jacques Brel. Hann hafði þar áður numið dans við P.A.R.T.S., dansskóla Anne Teresa De Keersmaeker og var þar á sérstökum námsstyrk. Sidi Larbi Cherkaoui hefur frá upphafi ferils síns unnið verk fyrir dansflokka, leikhús og óperur víðsvegar um heiminn auk þess að ferðast um með sinn eigin flokk og uppfærslur. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og til gamans má geta að Valgerður Rúnarsdóttir dansari hefur unnið mikið með honum síðastliðin ár.)

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is