Shalala á ferð og flugi
föstudagur, 20. apríl 2012
Shalala dans og leikhópur Ernu Ómarsdóttur, Valdimars Jóhannssonar og félaga hefur sem fyrr verið á ferð og flugi síðastliðið ár og sýnt á nokkrum helstu sviðslistarhátíðum Evrópu. Þau eru nýkomin úr Frakklandsför þar sem þau sýndu meðal annars verkið Teach us to outgrow our madness og Tickling death machine. Hið fyrrnefnda hefur verið á ferðalagi um Evrópu síðastliðin 3 ár og verið sýnt í mörgum leikhúsum og nokkrum virtum dans og sviðslistarhátiðum og fengið lofsamlega dóma. Einn virtasti dansgagnrýnandi Þýskalands sem skrifar fyrir Frankfurter Allgemeine ofl Wiebke Huester fer fögrum orðum um um Ernu og félaga og segir verkið Teach us to outgrow our madness “Stórkostlegt konuverk, óhugnalegt og fyndið.” Í ólíkum umsögnum sem verkið hefur fengið nýlega í fjölmiðlum segir einnig að verkið sé sniðugt og frumlegt í uppbyggingu þar sem fegurð og óhugnaður kallast á. óheft kvenorkan og seiðmagnaður dans einkenna sýninguna en húmorinn er heldur ekki langt undan.
Shalala frumsýndi einnig 2 ný verk á síðasta ári sem brátt eru að byrja sýningartúr um Evrópu en munu einnig koma við í Japan og Ástralíu.
Við sáum Skrímsli (We saw monsters) sem var frumflutt á Íslandi í Þjóðleikhúsinu á Listathátið Reykjavíkur í vor og hlaut 5 Grímutilnefningar verður einnig sýnt á nokkrum virtum sviðslistahátíðum á árinu, eins og Spielzeit ,Europa in Berlin sem er hluti af Berlíner Festspiele og á Feneyjarbienalnum fyrir dans , La Biennale di Venezia ofl.
Tickling death machine var frumsýnt á hinni virtu Kunstenfestival des Arts í Brussel sem er ein af helstu sviðslisthátíðum Evrópu og þótt víðar væri leitað. Í kjölfarið var þeim boðið að sýna meðal annars á Experiment Festival í Kyoto, Melbornue International theater festival og á fleiri sviðslistahátíðum og leikhúsum í Evrópu á næsta ári. Verkið sem er einskonar konsertperfomance með leikrænu ívafi verður flutt á íslandi þann 8 júní í Iðnó. Það er unnið í samstarfi við hljómsveitirnar Lazyblood og Reykjavík!.
Eldri verk Shalala eins og Digging in the sand sem nú þegar hefur verið sýnt víða um Evrópu verða einnig á ferðalagi þetta sýningartímabil en það var nýlega sýnt í hinu virta Volksbuhne í Berlín
Þeir íslensku dansarar sem dansa með hópnum eru Valgerður Rúnarsdóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir og Ásgeir Helgi Magnússon, Sigtryggur Berg Sigmarsson ofl.