Gleðilega Barnamenningarhátíð!
miðvikudagur, 18. apríl 2012Kæru unnendur barnamenningar,
Í dag stigu 1200 börn úr grunnskólum Reykjavíkur mikinn og litríkan gleðidans í Hörpu við opnun Barnamenningarhátíðar í Reykjavík. Í kjölfarið tók við fjölbreytt dagskrá hátíðarinnar um alla borg.
Barnamenningarhátíð í Reykjavík stendur yfir dagana 17. – 22. apríl, þar má finna afar spennandi dagskrá með hátt í 200 viðburðum fyrir og með börnum og unglingum, sem allir eru ókeypis. Er það von okkar að allir fái notið list- og menningarviðburða við hæfi. Dagskránna má finna í heild sinni á www.barnamenningarhatid.is
Þátttakan í hátíðinni er afar breið, að henni koma fjölmargir grunnskólar í borginni, frístundamiðstöðvar, leikskólar, tónlistar- og myndlistarskólar, listdansskólar, bókasöfn, listasöfn og aðrar menningarstofnanir svo og fjölmargir listamenn og einstaklingar með góðar hugmyndir – stórar og smáar.
Við hvetjum öll börn og þá sem vinna með börnum eða taka þátt í dagskránni með einhverjum hætti að senda boðskort til vina og vandamanna og bjóða þeim á viðburði. Á vefsíðu hátíðarinnar er hægt að smella á „Boðskort“ í borða efst á síðunni en þar er hægt að hlaða niður boðskorti hátíðarinnar í word-skjali eða senda boðskort beint af síðu hátíðarinnar. Einnig má þar hlaða niður sniðmáti af veggspjaldi hátíðarinnar sem fylla má út og nota fyrir viðburði hverskonar.
Að lokum viljum við kynna Steinunni Jónsdóttur, 13. ára yngismær og nemanda úr Laugalækjarskóla, en hún er blaðamaður Barnamenningarhátíðar í ár og mun taka myndir og skrifa greinar um viðburði hennar sem birtar verða á bloggsíðu hátíðarinnar. Við biðjum ykkur að taka vel á móti Steinunni.
Eins og fyrr segir stendur dagskráin yfir fram á sunnudaginn 22. apríl en þá mun lokahátíð Barnamenningarhátíðar fara fram með stórtónleikum í Laugardalslaug.
Gleðilega hátíð og góða skemmtun!
Með bestu kveðjum
Karen María Jónsdóttir, Guðmundur Birgir Halldórsson og Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir verkefnisstjórar Barnamenningarhátíðar í Reykjavík.