Point dansstúdíó auglýsir eftir danskennara næsta vetur

þriðjudagur, 17. apríl 2012

Point dansstúdíó er jazzballettskóli sem starfræktur er á Akureyri. Seinustu 7 vetur hefur dansskólinn stækkað og dafnað og áhugi Akureyringa og nærsveitunga á dansi er ótrúlegur. Nemendur skólans eru nú rétt tæplega 400 og kennarar eru 11.
Okkur vantar nú samt kennara næsta vetur með reynslu af jazzkennslu. Jazztækni og jazzdsans er grunnurinn í kennslunni hjá okkur, en ekki er verra ef kennari getur blandað inn í kennsluna öðrum dansstílum.

Umsækjandi getur sótt um 50% eða 100% stöðu.

Endilega sendið okkur fyrirspurn/umsókn á pds@pds.is fyrir 1. júní og/eða hafið samband við Sigyn Blöndal í s. 864-4993 ef þið hafið einhverjar spurningar varðandi þetta allt saman.

Hægt er að skoða myndir frá kennslunni og sýningum skólans inn á Facebook síðu okkar.

Point dansstúdíó
899-0669
www.pds.is
pds@pds.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is