Shalala sýnir í Frakkland

þriðjudagur, 3. apríl 2012

Dansflokkurinn Shalala sýnir dansverkið Teach Us To Outgrow Our Madness, í Villeneuve d´Ascq í Frakklandi. Verkið verður sýnt dagana 3. og 4. apríl næstkomandi í leikhúsinu La rose des Vents. En verkið hefur ferðast víða um Evrópu síðan það var frumsýnt fyrir þremur árum á danshátíðinni Les Antipodes í Brest Frakklandi árið 2009 og var m.a. sýnt í Þjóðleikhúsinu vorið 2009 og á Keðju Reykjavík 2010.

Verkið tekur á öfgafullum samskiptum kvenna sem lifa í mikilli nálægð, hvort sem er systra, nunna, norna eða kvenna innan fjölkvænissamfélaga. Samkeppni þeirra á milli, leynd, slúður og grimmd en einnig kærleikur, tilfinningalegir fjötrar og skilyrðislaus ást eru hluti þeirra birtingarmynda sem áhorfendur upplifa.

Erna Ómarsdóttir er listrænn stjórnandi Shalala en auk hennar koma að verkinu, Valdimar Jóhannsson, Riina Huhtanen, Sissel M. Björkli, Sigríður Soffía Níelsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Lieven Dousselare, Karen María Jónsdóttir og Sylvain Rausa.

Shalala var stofnað í kringum starfsemi Ernu Ómarsdóttur. Erna hefur unnið með nokkrum af helstu leikstjórum og danshópum Evrópu og hlotið all nokkrar alþjóðlegar viðurkenningar ásamt 4 Grímuverðlaunum. Síðustu árin hefur hún einbeitt sér meira að eigin verkum sem hafa verið sýnd um alla Evrópu og alla leið til Ástralíu og fengið fyrir lofsamlega dóma og undirtektir.

Hér má sjá stiklu úr verkinu:
http://youtu.be/AJiwyI4mPQ4

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is