Íslenski dansflokkurinn frumsýnir stórvirkið Minus 16

föstudagur, 3. febrúar 2012

Íslenski dansflokkurinn frumsýnir verkið Minus 16 þann 4. febrúar næstkomandi á Stóra sviði Borgarleikhússins. Minus 16 er eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin og hefur farið sigurför um heiminn. Þetta er glettið og beinskeitt verk sem brýtur niður múra milli flytjenda og áhorfenda og spannar skalann frá Dean Martin til cha-cha-cha, frá techno poppi til hefðbundinnar þjóðlagatónlistar Ísraela.

Ohad Naharin er talinn einn af fremstu nútímadanshöfundum heims í dag. Ohad hefur verið listrænn stjórnandi Batsheva danshópsins í Ísrael síðan 1990 og undir stjórn hans hefur flokkurinn vaxið að vegsemd og er einn virtasti dansflokkur veraldar. Áferð Naharin, stíll og tækni hefur þróast þennan tíma og hefur hann samið yfir 20 verk fyrir hópinn. Verk hans hafa einnig verið flutt af nokkrum fremstu danshópum heims.

Ohad Naharin hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum fyrir vinnu sína í þágu danslistarinnar, bæði í heimalandi sínu og á alþjóðavettvangi. Má þar nefna Chevalier de l‘Ordre des Arts et des Letters, veitt af frönskum stjórnvöldum, Israel Prize fyrir dans, Samuel H. Scripps American Dance Festival fyrir æviframlag til danslistar, EMET verðlaun fyrir framlag og afrek á sviði lista og vísinda í Ísrael, doktorsnafnbót, Doctor Honoris Causa of the Hebrew University of Jerusalem. Óhætt er að fullyrða að íslenskt menningarsamfélag fái einstakt tækifæri til að auðgast og dýpka með uppfærslu á verki Naharin, Minus 16 með Íslenska dansflokknum.

Groβstadsafari eftir Grímuverðlaunahafann Jo Strömgren verður til sýningar sama kvöld. Verkið var frumsýnt 4. mars 2011 sem hluti af dansveislunni Sinnum Þrír. Groβstadtsafari er líkamlega krefjandi dansverk sem gerir miklar tæknilegar kröfur til dansara. Hugsunin á bak við verkið er sú streita og árásarhneigð sem byggist upp í fjölmenni.

Samhliða sýningunni mun Íslenski dansflokkurinn bjóða nemendum úr 8.-10. bekk á stutt námskeið í nútímadansi í Borgarleikhúsinu. Markmiðið með þessum námskeiðum er að kynna listdans fyrir nemendunum og gefa þeim kost á að upplifa listgreinina af eigin raun.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is