Reykjavík Dance Festival
miðvikudagur, 1. febrúar 2012Dregið hefur til tíðinda hjá Reyjavík Dance Festival og er undirbúningur hátíðarinnar í ár hafinn af fullum krafti. Hátíðin í ár verður haldin í ágúst samhliða leiklistarhátíðinni Lókal og Norrænum Sviðslistadögum.
Nú í ár var ákveðið að ráða listrænan stjórnanda Reykjavík Dance Fesival og sú sem ríður á vaðið í þessu hlutverki er Halla Ólafsdóttir danshöfundur. Halla hefur verið búsett í Svíþjóð síðastliðin ár en hún útskrifaðist úr Mastersnámi í choreography þar í borg árið 2011.
Reykjavík Dance Festival í samstarfi við Dansverkstæðið fóru af stað með tilraunaverkefni nú í haust þar sem auglýst var eftir „Gestalistamönum RDF og Dansverkstæðisins 2012“. Valnefnd var skipuð óháðum listamönnum úr hinum ýmsu geirum valdi tvo danshöfunda/hópa úr hópi umsækjenda sem gegna munu hlutverki Gestalistamanna í ár. Það voru þær Margrét Bjarnadóttir og Védís Kjartansdóttir. Þær munu báðar frumsýna ný verk á Reykjavík Dance Festival í ágúst. Margrét hefur átt góðu gengi að gegna sem danshöfundur síðastliðin ár. Hún sýndi nú á dögunum verkið „On Misunderstanding“ í Þjóðleikhúsinu við góðar undirtektir og hefur m.a. unnið með hópnum Ég og Vinir mínir. Védís Kjartansdóttir er ungur og upprennandi danslistamaður sem stundað hefur nám við hinn virta danslistaskóla PARTS í Belgíu síðastliðin ár. Hún mun útskrifast nú í vor og mun vinna verkið í samvinnu við Louis Combeaud og Simon Portigal og verður spennandi að sjá þessa ungu danslistamenn stíga á svið.
Nú á dögunum var Tinna Lind Gunnarsdóttir ráðinn sem framkvæmdastjóri hátíðarinnar og kemur til starfa nú um mánaðarmótin. Tinna Lind er leikkona með mikla reynslu af verkefnastjórnun og stjórnun hátíða sem þessum. Við hlökkum til að taka á móti henni í starfið.