Valgerður í nýju verki eftir Sidi Larbi Cherkaoui
sunnudagur, 29. janúar 2012
Valgerður Rúnarsdóttir danslistakona hefur nýlega hafið æfingar á nýju dansverki eftir danshöfundinn Sidi Larbi Cherkaoui. Verkið nefnist Puz/zle og verður frumsýnt á Listahátíðinni í Avignon næsta sumar en nú þegar eru fyrirhugaðar sýningar víða um Evrópu allt til loka ársins 2013. Að sýningunni koma 9 dansarar, tónlistamenn, brúðulistamaður, sviðshönnuður, vídeólistamaður o.fl. Verkið verður unnið með hléum á komandi mánuðum en allir listamennirnir vinna náið að sköpunarferlinu og skapa verkið í sameiningu með danshöfundinum.
Valgerður hefur á rúmum fjórum árum tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum með Cherkaoui og má þar nefna dansverkin Origine og Babel (einnig samið af Damien Jalet), en verkin hafa verið sýnd víða um heim og hlaupa sýningarnar á hundruðum. Þá hefur Valgerður einnig dansað í óperuppfærslu sem frumsýnd var í Scala-óperunni og í kvikmyndinni Anna Karenina, en Cherkaoui sá um dansatriði og stíliseringu hreyfinga í myndinni. Myndin verður frumsýnd í lok ársins 2012.
Sidi Larbi Cherkaoui er einn fremsti danshöfundur í Evrópu og skipta verk hans tugum. Hann stofnaði sinn eigin dansflokk, Eastman, fyrir tveimur árum en hann er starfræktur í Antwerpen í Belgíu. Þá hefur hann einnig sett upp verk með danshópum á borð við Danska óperuballettinn, Culberg ballettinn, Þjóðarballettinn í Hollandi, Monte Carlo Ballettinn, Cedar Lake í New York og unnið með munkum frá Shaolin hofinu í Kína. Einnig hefur hann unnið fjölmörg samstarfsverkefni með listamönnum á borð við Damien Jalet, Akram Khan, Antony Gormley o.fl..