Inntökupróf á Samtímadansbraut LHÍ

föstudagur, 27. janúar 2012

Samtímadansbraut leiklistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum nýnema fyrir BA nám í samtímadansi sem hefst haustið 2012. Opnað hefur verið fyrir umsóknir en umsóknarfrestur rennur út 23. mars 2012. Inntökuprófið fer fram dagana 10-11. apríl 2012.

Námið
Námið er þriggja ára nám og útskrifast nemendur með B.A. gráðu í samtímadansi. Námið miðar að því að skila af sér vel þjálfuðum, skapandi og forvitnum danslistamönnum sem nálgast viðfangsefni sín með rannsakandi huga og eru tilbúnir að takast á við starfið í fjölbreyttum og síbreytilegum heimi samtímadansins.

Nánari upplýsingar um námið má finna á vef skólans http://leiklistardeild.lhi.is/namsbrautir/samtimadans/

Inntökuferli
Skilyrði er að nemendur hafi lokið stúdentsprófi og framhaldsstigi í dansi eða sambærilegu námi. Inntökunefnd velur úr hópi umsækjenda, en auk mats á umsóknum með tilliti til formlegra skilyrða byggir valið á verklegu inntökuprófi og viðtölum.

Sjá nánar um inntökuferli á vef skólans http://lhi.is/umsoknir/leiklistardeild/

 

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða ef þú óskar eftir kynningu á náminu og skipulagi þess þá ekki hika við að hafa samband.

Nánari upplýsingar veita Sveinbjörg Þórhallsdóttir fagstjóri samtímadansbrautar, sveinbjorg@lhi.is s. 545 2280 og Steinunn Ketilsdóttir stundakennari samtímadansbrautar, steinunn.ketils@lhi.is.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is