Morguntímar og námskeið í samtímadansi
miðvikudagur, 11. janúar 2012
Í næstu viku þann (16.-20. janúar) munu morguntímar hefjast á ný hjá Dansverkstæðinu. Það er hún belgíska Eleonore Valre sem mun kenna í tvær vikur. Hún kennir frábæra samtímadans tíma. Tímarnir byrja klukkan 10.00 og eru 1.5 klukkustund. Sama verð og alltaf 1000kr fyrir stakan tíma og 2500kr fyrir vikuna.
Ekki missa af þessu tækifæri til að taka tíma hjá kennara sem lifir og hrærist í hjarta samtímadansins í Evrópu.
Einnig verður hún með tveggja vikna námskeið sem hefst 17. janúar. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 20:00-21:30 og svo laugardaginn 21.janúar klukkan 14.00-16.00. Verð fyrir heilt námskeið 15.000kr, stakur tími 2500kr
Nánari upplýsingar má nálgast á dansverkstaedi@dance.is eða í síma 611-8244
Eleonore Valre kemur til landsins í samstarfi við Dansbraut Leiklistar – og dansdeildar Listaháskóla Íslands.