Líf og fjör á Dansverkstæðinu með Hreyfiþróunarsamsteypunni
þriðjudagur, 10. janúar 2012Íslenska Hreyfiþróunarsamsteypan vinnur nú að sínu fimmta sviðsverki í fullri lengd. Verkið Úps! er lokaverk í Shakespeare Trílógíu hópsins en frumsýnt verður í Tjarnarbíói byrjun mars.
í Úps! verður húmor rannsakaður í gegnum gamanleiki WIlliam Shakespeare með líkamann að vopni. Hvað er fyndið? Má gera grín að öllu? Er fyndni flóttaleið frá okkar raunverulega ástandi.
Þó að æfingar séu hafnar er hópurinn þó ekki fullskipaður, Ásgerður Guðrún Gunnarsdóttir Dramatúrg er stödd í Hollandi og Ragnheiður S. Bjarnarson sviðslistakona er í Japan. Þær fara þó að tínast inn í janúarmánuði þegar tekur að birta.