Dedication í Berlín

laugardagur, 7. janúar 2012

Margrét Sara Guðjónsdóttir sýndi við góðar undirtektir útkomu verks í vinnslu, titlað Dedication, þann 22.desember á Livingroom festivalinu í Berlín. Dedication var einnig sýnt á Reykjavík Dance Festival sem hluti af rannsóknar- og undirbúningsvinnu stærra verks, ,,Variations on Closer”, sem frumsýnt verður haustið 2012. Margrét Sara vann rannsóknarvinnuna í listamanna residency-u hjá Tanz im August festivalinu i Berlín, WP Zimmer í Antwerpen, Barneys Crossings í Köln, RAS Kulturhus Sandnes í Noregi og var styrkt af Les Grandes Traversees festivalinu í Bordeaux, Frakklandi.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is