ICEHOT Í HELSINKI Í DESEMBER 2012 – TÆKIFÆRI FYRIR DANSLISTAFÓLK
föstudagur, 6. janúar 2012
Opnað hefur verið fyrir umsóknir til að taka þátt í Ice Hot norrænum dansplatformi í Helsinki að ári. Leiklistarsamband Íslands / Kynningarmiðstöð sviðslista er fulltrúi Ice Hot á Íslandi.
Umsóknarfrestur rennur út 31. janúar og er fólk hvatt til að sækja sem fyrst um því umsóknarferlið tekur tíma.
Ice Hot var sett á fót í desember 2010 og vakti töluverða athygli. Þeir sem sýndu verk sín hafa all flestir fengið margvísleg tækifæri í kjölfarið. Dansparið Steinunn&Brian tóku þátt fyrir Íslands hönd árið 2010.
Fyrirhugað er - ef fjármögnun tekst endanlega - að 28 verk verði á fjölunum í Helsinki í desember 2012
Allar upplýsingar og umsóknargögn eru á http://www.nordicdanceplatform.com