LEIKLISTARSAMBAND ÍSLANDS KYNNIR ÍSLENSKAR SVIÐSLISTIR Í NEW YORK

fimmtudagur, 5. janúar 2012

- þrjú íslensk verk á svið og víðtæk önnur kynning- 

Leiklistarsamband Íslands, LSI, mun standa fyrir öflugri kynningu á íslenskum sviðlistum í New York um næstu helgi, dagana 7. – 10.janúar. Þrjú íslensk sviðsverk verða sýnd og íslenskar sviðslistir í heild kynntar á stærsta alþjóðlega þingi kaupenda sviðsverka, sem haldið er ár hvert þar í borg.

Verkefnið er hluti af stóru norrænu samstarfsverkefni, NORDICS ON STAGE, sem stendur allt árið 2012. Það er liður í undirbúningi fyrir stofnun Kynningarmiðstöðvar íslenskra sviðslista sem Leiklistarsambandið vinnur að.

Eftirfarandi sýna í New York:

Íslenski dansflokkurinn með verkið Kvart eftir norska danshöfundinn Jo Strömgren
Verk dansflokksins var valið úr 35 norrænum verkum. Það verður sýnt í tvígang þann 7. janúar í Gerald W. Lynch leikhúsinu þar í bæ.

Erna Ómarsdóttir sýnir tónleikaverkið Lazyblood og framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang verkið Safari í Joyce Soho leikhúsinu þann 10. janúar. 

Alls verða 12 norræn sviðslistaverk á fjölunum í New York þessa daga.

Nordic on stage (Norrænir á svið) gefa út veglega bækling um norrænar sviðslistir þar sem kynntir eru sérstaklega yfir 60 norrænir leik- og danshópar. Kynningin í New York borg er upphafið af víðtækri sameiginlegri norrænni sviðslistakynningu sem mun standa allt árið 2012 og fara fram á 7 stórum viðburðum í þremur heimsálfum.

Í New York er:

  • stærsta alþjóðlega þing kaupenda sviðslistasýninga, APAP (Association of Performing Arts Presenters). Búist er við hátt í 2000 kaupendum sviðslistasýninga þessa daga í New York, alls staðar að úr heiminum. Nordics on Stage verða með sameiginlega norrænan kynningarbás á APAP.
  • Under the Radar hátíðin sem talin er ein framsæknasta sviðslistahátið Bandaríkjanna
  • Coil hátíðin í leikhúsinu PS 122 sem er brautryðjandi í kynningum á nýjum verkum.

Sérstök vefsíða http://www.ice-storm-showcase.com hefur verið opnuð um verkefnið og eru sýningarnar í New York haldnar í samstarfi við Cinars í Kanada - sem er umfangsmikið kynningarfyrirtæki fyrir kanadískar sviðslistir. Cinars hefur áratuga reynslu af því að standa fyrir verkefnum af þessu tagi.

Norræna sendiráð og ræðiskrifstofur í Bandaríkjunum koma að verkefninu og standa fyrir móttökum. Verkefnið er styrkt af Norrænu menningargáttinni.

Fyrir Leiklistarsamband Íslands er þetta mikilvægt fyrsta verkefni til undirbúnings þess að Kynningarmiðstöð íslenska sviðslista taki til starfa og bíður sambandið þess að samningar takist við stjórnvöld um stofnun miðstöðvarinnar.

Nánari upplýsingar: Ása Richardsdóttir forseti LSI, gsm 664 0404 asa@stage.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is