Dans dans dans
fimmtudagur, 27. október 2011Útsendingar á Dans Dans Dans hefjast 29. október næstkomandi. Þá verður sýnt frá áheyrnaprufum sem fram fóru í Laugardalshöll helgina 1.-2. október. Fjölmargir dansarar tóku þátt og voru atriðin fjölbreytileg og sýndu mikla breidd er innan danslistarinnar. 30 atriði voru valin til þátttöku og deilast þau niður á fimm laugardaga, sex atriði hvert kvöld.
Fyrsti undanúrslitaþáttturinn verður sýndur 5. nóvember og komast tvö atriði í úrslit úr hverjum þætti. Úrslitin verða svo haldin 10. desember. Þetta er stórviðburður sem enginn má láta framhjá sér fara.