Viewpoint þjálfunartímar í Dansverkstæðinu með J. Ed Araiza og Pálínu Jónsdóttur í næstu viku.

fimmtudagur, 17. mars 2011

21. mars klukkan 9:00 – 10:30
J. Ed Araiza

23. mars klukkan 9:00 -10: 30
J. Ed Araiza

25. mars klukkan 9:00 – 10: 30
Pálína Jónsdóttir

Viewpoints (sjónarhornin) er spunaaðferð sem á upptök sín í póstmóderníska dansheiminum og var set fram af danshöfundinum Mary Overlie og síðar aðlöguð fyrir leikara af Anne Bogart. Viewpoints er leikhústungumál sem skilgreinir það sem gerist á sviðinu og samanstendur af hugtökum sem lýsa reglum hreyfinga í tíma og rúmi. Viewpoints er hagnýt aðferð sem byggir á samvinnu leikhúslistamanna, eins konar verkfærakassi sem gefur hópi leikara tækifæri til að skapa og vinna með atriði leiklistarinnar sem standa utan hefðbundins frásagnarramma.
Mary Overlie talaði um að út frá 6 sjónarhornum (rými, saga, tími, tilfinning, hreyfing og form) væri rökréttast að skoða og greina hreyfingu.

J. Ed Araiza er með langa og fjölbreytta reynslu í að vinna í fjölmenningarlegum og þverfaglegum verkefnum sem sviðslistamaður, leikstjóri og leikskáld. Síðastliðin 19 ár hefur hann verið partur af SITI flokkinum sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu og starfar með þeim að ýmislegum verkefnum. Hann leikstýrði Völuspá sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu árið 2009. Hann hefur starfað sem gestakennari í Julliard School, Yale háskóla, NYU og fleiri háskólum. Hann kennir Viewpoints, SUZUKI aðferð fyrir leikara, dramatúrgíu og fleira.

Pálína útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1995. Hún hefur starfað hérlendis og erlendis við leikhús og kvikmyndir. Pálína lauk námi í kennsluréttindum frá LHÍ árið 2009 og framhaldsnámi í Columbia University í NYC í Suzuki, Viewpoint og Composition leiklistaraðferðum undir leiðsögn Anne Bogart og Siti Company.

Verð:
Stakur tími: 1000kr
Vikukort: 2500 kr 3 tímar (gildir í afmarkaðan tíma)
Mánaðarkort: 8000 kr 12 tímar (gildir í afmarkaðan tíma)

ATH að það er ekki posi á staðnum!
Upplýsingar á veffanginu dansverkstaedi@dance.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is