The Memory of Skin (TMOS)

laugardagur, 25. september 2010

Í sumar tók Guðrún Óskarsdóttir þátt í dansmynd sem tekin var upp á vesturströnd Frakklands. Þessi hluti var þriðji og um leið lokahlekkur verksins.

The Memory of Skin er dans- og dramamynd sem byggist aðallega á ljósmyndum og stuttum videóbrotum. TMOS er samstarf franska ljósmyndarans Samuel Hense og finnska leikstjórans og danshöfundarins Miikka Ryytty.

Dansmyndin samanstendur af þremur sjálfstæðum sögum og er tekin upp í þremur löndum, Finnlandi, Frakklandi og Slóveníu. Sameiginlegt þema er húðin og hæfni hennar til að varðveita dýpstu og leyndustu minningar.

Allar ljósmyndirnar og videóbrotin eru tekin upp í svart - hvítu. Tökur hófust árið 2009 og lauk sumarið 2010

The Memory of Skin verður frumsýnd vorið/sumarið 2011

Leikstjóri og danshöfundur: Miikka Ryytty ( Finnland)

Ljósmyndari: Samuel Hense (Frakkland)

Þátttakendur/dansarar:
Luke Dunne (England),
Katja Legin (Slóvenía),
Katri Luukkonen (Finnland),
Rachel Oidtmann (Þýskaland),
Guðrún Óskarsdóttir (Ísland),
Miikka Ryytty (Finnland)

Ljósmynd: © samuel hense

 

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is