DAMA tekur yfir dansbraut LHÍ

föstudagur, 24. september 2010

Átta nemendur tónlistar- og dansdeildar Listaháskóla Íslands taka þátt í alþjóðlegri vinnustofu undir hatti Nord plus tengslanetsins DAMA (Dance and Media Art) dagana 27. september til 10. október næstkomandi. Auk þeirra taka þrettán nýmiðlanemendur og kennarar frá Háskólanum í Rovaniemi í Finnlandi, Háskólanum í Gotlandi í Svíþjóð og Háskólanum í Viljandi í Eistlandi þátt í vinnustofunni. Íslenskir kennarar í námskeiðinu eru Áki Ásgeirsson og Karen María Jónsdóttir.

Í vinnustofunni verður boðið upp á tilraunarými þar sem unnið verður með hreyfingu, mynd og hljóð. Afraksturinn verður sýndur á Keðju laugardaginn 9. október, sem ýmsar forystustofnanir og hópar í nútímadansi á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum standa fyrir. Sex stórir viðburðir, í sex borgum, hafa verið hrygglengja Keðju undanfarin þrjú ár, en stefnumótið í Reykjavík er hið síðasta og fjallar um bræðing listgreina.

 

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is