Dansað í Dorkypark
miðvikudagur, 22. september 2010
Ásrún Magnúsdóttir, þriðja árs nemandi samtímadansbrautar Listaháskóla Íslands, hefur nú hafið starfsþjálfun hjá hinum argentínska danshöfundi Constönzu Macras en hún fer fyrir Dokypark, hinum heimsþekkta dansflokki sem hefur aðsetur í Berlín. Ásrún tekur þátt í rannsóknarvinnu á nýju verki fyrir 10 dansara sem ber vinnuheitið BERLIN og verður frumsýnt seinna í vetur auk þess sem hún tekur þátt í spunavinnu þar sem efniviður sýningarinnar er skapaður.
Constanza Macras og hópurinn hennar Dorkypark varð frægur á einum degi þegar leikhússtjóri Schaubühne í Berlín, keypti réttinn að fyrsta verkinu hennar Back to the Present. Á einum degi fór Macras úr því að vera neðanjarðarlistamaður í yfirgefnu verksmiðjurými yfir í að vera einn fremsti danslistamaður samtímans með aðsetur í einu virtasta leikhús Evrópu. Í dag er Dorkypark bókað með óuppsett verk langt fram í tímann út um víða veröld.