Katla Þórarinsdóttir vinnur að „nothing” í Cork á Írlandi
mánudagur, 20. september 2010
Í septembermánuði vinnur Katla í Cork á Írlandi þar sem hún hefur artist residence í Firkin Crane, Dance Center. Á meðan á dvöl hennar stendur vinnur hún að nýju dansverki „nothing” í samstarfi við Folded Productions, sem samanstendur af írsku danslistamönnunum Laura Murphy og Ailish Claffey.
"nothing" is based on the value of the 1 cent coin…. perhaps just a wish in a wishing well, sent by a tingle in one's mind …projected into a well of nothingness … yet what comes into play when a coin is dropped… "ting!"
Dansverkið verður frumflutt í Firkin Crane 1. október næstkomandi og síðan aftur í Excel Centre í Tipperery þann 4. október.
Verkefnið hlýtur styrk frá Cork City Council og Firkin Crane.
Þess má geta að Firkin Crane leitar eftir umsóknum að Blank Canvas, residence-verkefni þeirra fyrir árið 2011 og umsóknarfrestur rennur út þann 1. október 2010.
Upplýsingar er að finna á heimasíðu þeirra, http://www.firkincrane.ie/index.php/residencies/blank-canvas