Keðja Reykjavík 2010

fimmtudagur, 16. september 2010

Skráning fyrir Íslendinga til þátttöku á Keðju Reykjavík 2010 er nú hafin. Óskir þú eftir skráningargögnum sendu þá póst á netfangið arna@leikhopar.is.

Keðja er frábært tækifæri fyrir alla dans/sviðslistamenn til þess að hitta erlenda sem og innlenda kollega, mynda ný tengsl og rækta þau gömlu.

Keðja Reykjavík er:

- 16 listviðburðir af öllum stærðum og gerðum sem munu fara fram í Reykjavík og nágrenni, jafnt utandyra sem innandyra þar sem lögð verður áhersla sambræðing listgreina. Upplýsingar um alla listviðburði er að finna á www.kedja.id.is (athugið vefsíðan er á ensku).

- Málstofur, fyrirlestrar og umræður þar sem samruni listgreina og framtíð nútímadans verður rædd undir forystu innlendra og erlendra sérfræðinga

- Einstakt tækifæri fyrir íslenskt listafólk og menningarstjórnendur að hitta og mynda tengsl við erlenda kollega

Um Keðju

Keðja Reykjavík er lokaviðburður hins stóra samstarfsverkefnis Keðju sem ýmsar forystustofnanir og hópar í nútímadansi á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum standa fyrir. Verkefnið hófst í nóvember 2007 og því lýkur nú í Reykjavík í október.

Sex stórir viðburðir/stefnumót, í sex borgum, hafa verið hrygglengja Keðju. Stefnumótið í Reykjavík er hið síðasta og fjallar um bræðing listgreina. Hver viðburður fékk sitt eigið tema og í öllum tilvikum hefur markmiðið verið að styrkja stöðu dansins gagnvart öðrum listgreinum eða þáttum menningarlífsins í Norður Evrópu. Verkefnið hlaut einn stærsta þriggja ára styrk Evrópusambandsins árið 2008 og að auki hefur það notið ýmsra norrænna styrkja sem og styrkja frá opinberum aðilum í þeim löndum sem viðburðir verkefnisins fara fram. Íslenskt sviðlistafólk og fræðimenn í listum hafa notið mjög góðs af Keðjuverkefninu en þegar hafa yfir 60 Íslendingar tekið þátt í Keðju viðburðum. Keðja er stærsta verkefni sínnar tegundar sem fram fer á Norðurlöndum í dag. Keðja er orðið einskonar móðurtengslanet í dansi og sviðlistum en í gegnum Keðjuviðburði hefur sviðslistafólk, höfundar, menningarstjórnendur, framleiðendur, kennarar, nemendur og fræðimenn hittst og stofnað sín eigin tengslanet.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is