Mikil dansveisla í uppsiglingu

miðvikudagur, 15. september 2010

Undirbúningur fyrir „Keðju Reykjavík“ er nú í fullum gangi en Íslenski dansflokkurinn mun leiða hátíðina sem er umfangsmikill, alþjóðlegur sviðslistaviðburður sem haldinn verður í október n.k. Um 300 erlendir gestir hafa skráð sig á Keðju Reykjavík og er það fjölmennasta heimsókn erlendra gesta til íslensks sviðlistafólks frá því Evrópska listaþingið IETM var haldið í Reykjavík í október árið 2000.

Viðburðurinn er partur af samvinnuverkefni átta Evrópuþjóða og er hérlendis á vegum Íslenska dansflokksins í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Borgarleikhúsið, Sjálfstæðu leikhúsin og Reykjavík Dance Festival.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is