Raven kynnir dans- og tónlistarhelgi

þriðjudagur, 14. september 2010

Helgina 17. – 19. september mun hópurinn Raven sýna tvö verk, Hulda - falið verkefni og Hrefna öll kvöldin kl. 20:00 í Klassíska Listdansskólanum, Grensásvegi 14.

Á sunnudeginum kl. 14:00 – 18:00 verður margt um að vera, þar sem sýnd verða ýmis verk sem hópurinn hefur unnið saman og sitt í hvoru lagi.

Miðaverð er einungis 1000 kr. Miðapantanir eru í síma: 616 2120 og á midi@ballet.is

Raven hópurinn samanstendur af ólíkum listamönnum hvaðan af úr heiminum sem eru í fyrsta skipti öll saman komin á Íslandi. Okkur hlakkar mikið til að sjá ykkur öll.

Frekari upplýsingar eru á raven.is.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is