Workshop með Raven

föstudagur, 10. september 2010

Dans og Sviðslistahópurinn Raven sem samanstendur af dans- og tónlistarmönnum víðsvegar úr heiminum (Argentína, England, Ísland, Ítalía, Portúgal, Svíþjóð, Ungverjaland, Þýskaland) eru samankomnir í Reykjavík og verða með ýmsar uppákomur í september.

Fyrst verður Raven með skapandi spuna námskeið, þar sem þátttakendur fá að kynnast því hvernig hópurinn vinnur. Áhersla er lögð á að draga fram listræna sköpun einstaklingsins í hreyfingum og túlkun í samvinnu við lifandi tónlist. Ekki missa af því!

Námskeiðið er haldið í Klassíska Listdansskólanum á Grensásvegi 14 í Reykjavík, dagana 11. og 12. september n.k. Kl: 13:00-16:00. Verð: 2000 kr.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu okkar www.raven.is , e-mail:midi@ballet.is eða í síma: 6162120

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is