Sýningarár Íslenska dansflokksins 2010-2011
fimmtudagur, 9. september 2010
Sagan af kynjaverum Bláa Lónsins heldur áfram á Stóra sviðinu í haust í verkinu
„Transaquania – Out of thin Air“
Stórsýningin „Ofviðrið“ í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur verður frumsýnt um áramótin og boðið verður upp á sannkallaða dansveislu í mars undir hatti „Sinnum þrír“ þar sem áhorfendur sjá kröftugan dans, ærslafullan kabarett og sirkuslistir í þremur ólíkum verkum.
Í apríl fer flokkurinn norður á Akureyri með bráðskemmtilega sýningu sem er ætluð allri fjölskyldunni
Starfsemin hjá Íslenska dansflokkurinn er komin á fullt og eru starfsfólk og dansarar nú að hita upp fyrir fjölbreytt sýningarár.
Sýningarár Íslenska dansflokksins hefst 7. október með frumsýningu á „Transaquania – Into thin Air“. Höfundar verksins eru Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir. Tónlistin er í höndum Ben Frost og Valdimars Jóhanssonar. Þessi fjölhæfi hópur listafólks hefur unnið náið saman í gegnum tíðina og náð einstökum samruna dans-,tón- og myndlistar.
„Transaquania – Into thin Air“ er sjálfstætt framhald af hinu óvenjulega verki „Transaquania - Out of the Blue“ sem Íslenski dansflokkurinn sýndi í Bláa Lóninu í apríl 2009. Verkið verður nú fært inn á Stóra svið Borgarleikhússins þar sem saga og þróun þessara kynjavera Bláa lónsins heldur áfram. Þessi nýji flokkur manna lifir nú í daglegum átökum við náttúruöflin. Allt vatn er horfið af yfirborði jarðar og þau þurfa einnig að takast á við eilíf pólskipti þar sem þyngdarlögmálið tekur sífelldum breytingum.
Um áramótin mun Íslenski dansflokkurinn í samstari við Leikfélagi Reykjavíkur frumsýna stórsýninguna „Ofviðrið“ eftir Shakespeare undir stjórn Oscaras Korsunovas. Oskaras hefur verið í hópi fremstu leikstjóra Evrópu síðustu ár og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, en hann er þekktur fyrir sinn nútímalega og persónulega stíl og beitingu líkamlegrar tjáningar í verkum sínum.
Ofviðrið hverfist um heiftarleg átök hinna æðri og lægri hvata og er sannkallaður gleðileikur uppfullur af kímni, ást og krafti. Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið í tvö ár og verður öllu til tjaldað fyrir áhorfendur.
Í mars 2011 býður Íslenski dansflokkurinn upp á sannkallaða dansveislu þar sem sýnd verða þrjú ólík verk á einu kvöldi. Veislan ber titilinn „Sinnum þrír“ og munu áhorfendur upplifa kröftugan dans, ærslafullan kabarett og sirkuslistir
Undir hatti „Sinnum þrír“ ber fyrst að nefna nýtt verk eftir Jo Strömgren. Jo hefur áður unnið með Íd og er meðal annars höfundur Grímuverðlaunaverksins „Kvart“ sem dansflokkurinn hefur sýnt víða erlendis, allt frá Finnlandi til Suður Ítalíu og fengið frábæra dóma. Hið nýja verk mun vera í anda „Kvart“, líkamlega krefjandi dansverk sem gerir miklar tæknilegar kröfur til dansaranna.
Á dagskránni verður einnig verkið „Heilabrot” eftir tvíeykið Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttur. Heilabrot var sýnt sem verk í vinnslu á Djammviku haustið 2009 en síðan þá hefur verkið verið þróað áfram, meðal annars til sýninga erlendis.
„ Heilabrot“ er stefnumót við fjóra einstaklinga. Með átökum og samvinnu á milli þeirra skapa þau hysterískan kabarett. Ýktar persónurnar skjóta á hvor aðra og ofsafengin atburðarásin snýst um sjálfan sig og fléttast inn og út úr fókus.
Þriðja verkið nefnist „White for Decay” og er eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttu sem kemur nú til liðs við Íd í fyrsta sinn. Sigríður er ungur danshöfundur sem hefur vakið mikla athygli fyrir verk sín þar sem hún blandar gjarnan myndlist við dans. Sigríður stundaði nám við fremsta sirkusskóla evrópu ESAC. Þetta nýja verk mun blanda saman samtímadansi og sirkuslistinni og því sannarlega fersk viðbót við þá fjölbreyttu dansstíla sem þegar hafa verið kynntir hér á landi.
Íd heldur svo til Akureyrar í byrjun apríl og mun í samvinnu við Menningarhúsið Hof bjóða Norðlendingum upp á bráðskemmtilega sýningu sem er ætluð allri fjölskyldunni.
Íslenski dansflokkurinn gefur áhorfendum kost á að kaupa danskort sem inniheldur miða á allar þrjár sýningar flokksins í vetur fyrir aðeins 7.500 krónur eða 2.500 hver sýning. Ef greitt er fullt verð fyrir allar sýningarnar er verðið 12.400 og er þetta því töluverð búbót fyrir dansáhugafólk.
Íslenski dansflokkurinn er án efa sú íslenska sviðslistastofnun sem hefur ferðast og sýnt einna mest erlendis á síðustu árum. Íd er einnig mjög í virkur í alþjóðlegu samstarfi. Stjórnendur flokksins tóku í fyrsta sinn nú í ágúst þátt í stórri alþjóðlegri dansráðstefnu sem haldin er annaðhvert ár í Dusseldorf, en ráðstefnuna sóttu yfir 1000 manns frá öllum heimshornum.
Í október 2010 leiðir Íslenski dansflokkurinn „Keðja Reykjavík” sem er umfangsmikill alþjóðlegur sviðslistaviðburður. Viðburðurinn er partur af samvinnuverkefni átta Evrópuþjóða og er hérlendis á vegum Íslenska dansflokksins í samstarfi við Listaháskóla Íslands, Borgarleikhúsið, Sjálfstæðu leikhúsin og Reykjavík Dance Festival. Gert er ráð fyrir yfir 300 erlendum gestum á „Keðja Reykjavík“ og er það fjölmennasta heimsókn erlendra gesta til íslensks sviðlistafólks frá því Evrópska listaþingið IETM var haldið í Reykjavík í október árið 2000.