Aukasýning á after the rain, I saw you
miðvikudagur, 8. september 2010
Vegna fjölda áskoranna verða aukasýningar á dansmyndinni after the rain, I saw you miðvikudaginn 8.september í Hafnarhúsinu frá kl. 10-17. Dansmyndin er eftir Hrafnhildi Einarsdóttur og var íslandsfrumsýningu hennar nýlokið á Reykjavík Dance Festival.
Hrafnhildur Einarsdóttir er sjálfstætt starfandi danslistamaður og listrænn stjórnandi Raven productions. Útskrifaðist með BA gráðu í dance theatre úr Laban í London, vorið 2009. Síðustu ár hefur Hrafnhildur unnið jafnt sem dansari og sviðslistamaður í verkum eftir aðra höfunda en einnig samið og sett á svið eigin verk, þar sem hún hefur nýlega byrjað að fara ólíkar leiðir í að semja með því að blanda dansvinnu sinni saman við videovinnu og eigin hljóðskor. Sumarið 2009 hlaut Hrafnhildur styrk til að taka þátt í DanceWEB scholarship program á ImpulsTanz danshátíðinni í Vínarborg, Austuríki, sama ár fékk hún verðlaun sem framúrskarandi listnemi í Kópavogi. Haustið 2009 samdi Hrafnhildur og sýndi í samvinnuverkefni með Danskonstkollektivet Sch!! Í Stokkhólmi, Svíþjóð og Stavanger, Noregi. Hún vinnur nú á Íslandi með Raven Productions og með dans smíða hópi sem er með aðsetur sitt í London og hafa sýnt verk sín í Englandi, Hollandi og Frakklandi. Hrafnhildur er einnig partur af alþjóðlegu sviðslistasamtökunum Meetoo Moving Arts Network.
Leikstjóri, myndartaka og klipping: Hrafnhildur Einarsdóttir
Dansarar/samstarfsaðilar: Irene Cena og Wiebke Schuster
Tónlist/hljóð: Lucas Acuna og Hrafnhildur Einarsdóttir
Tæknileg aðstoð: Sigurður Helgason