Guðrún Óskarsdóttir og de Kiss Moves

þriðjudagur, 7. september 2010

Sýningarferðalag dansflokksins de Kiss Moves sem Guðrún Óskarsdóttir dansar í hófst fyrir tveimur vikum með sýningu í Vondelpark í Amsterdam, ásamt Scapino Ballet Rotterdam.

Flokkurinn mun sýna í Amsterdam og víðs vegar um Holland fram í miðjan desember. Fyrirhugaðar eru 60 sýningar á tveimur dansverkum, Just Shut Up and Dance og Vivaldi Rocks.

De Kiss Moves er ungur dansflokkur í Amsterdam. Listrænn stjórnandi flokksins er danshöfundurinn Dorottya Kiss. Flokkurinn er skipaður ólíkum dönsurum þar sem blandað er saman nútímadansi, ballett, hip hoppi, fimleikum, samkvæmisdönsum, þjóðdönsum og fleiri dansstílum þar sem hver dansari fær að að njóta sín en gefst jafnframt tækifæri til að læra af reynslu hinna og miðla eigin reynslu.

 

Danshöfundur og listrænn stjórnandi de Kiss Moves: Dorottya Kiss

Aðstoðardanshöfundur: Keren Rosenberg

Dansarar: Alekszandr Szivkov, Dorottya Kiss, Guðrún Óskarsdóttir, István Barakso, Kata Kánya, Keren Rosenberg, Martin Barnes og René Vrielink.

Tæknimaður: Martijn Smolders og Jeffrey Steenbergen

Ljósahönnuður: Martijn Smolders

Klipping tónlistar: Rexallan Clemensia

Framkvæmdarstjóri: Mirelda Presierie

Markaðsstjóri: Jildou Kroes

Framleiðandi: Hans Schamlé

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is