Sex íslenskar stelpur í P.A.R.T.S
mánudagur, 6. september 2010
Sex íslenskar stelpur hófu nám við hinn virta dansháskóla P.A.R.T.S í Belgíu nú í september. Þær Inga Huld Hákonardóttir, Rósa Ómarsdóttir og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir eru allar nýnemar og hefja nám í Training prógraminnu þar sem áhersla er lögð á líkamlega þjálfun og tækni dansaranna.
Bára Sigfúsdóttir, Melkorka Sigríður og Védís Kjartansdóttir hafa nú þegar lokið við þann hluta námsins og stóðust allar inntökupróf inn á Research Cycle. Þar er áherslan lögð á sköpun og persónulega framþróun dansaranna auk þess sem margir af frægustu danshöfundum í Evrópu koma að kennslunni. Má þar nefna David Zambrano, Xavier Le Roy, Önnu Teresu de Keersmaeker, Jeremy Nelson, Julian Hamilton, Thomas Hauerd, Jonathan Burrows og fleiri. Það er mikill heiður að vera valinn í skólann en þúsundir sækja um í inntökuprófum sem haldin eru út um allan heim. Theo Van Rompay skólastjóri minntist sérlega á það í opnunarræðu sinni hversu ánægjulegt það væri að fá svona marga íslenska dansara til liðs við skólann.