"Unturtled"

laugardagur, 4. september 2010

"Unturtled" heitir verk þýska tvíeikisins Isabellu Schad og Laurent Goldring sem frumsýnt verður á Reykjavík Dance Festival laugardaginn 4. september í Hafnarhúsinu kl. 17:00.

Verkið "Unturtled" gæti gefið til kynna að skel skjaldbökunnar verði fjarlægð í þeim tilgangi að varpa ljósi á það sem undir henni leynist. Verk Isabelle Schad og Laurent Goldring gefur okkur hinsvegar ekki færi á því að kíkja undir yfirborðið.

Verkið "Unturtled" flettir því ekki ofan af líkamanum heldur þarf áhorfandinn að ímynda sér hvað finnst undir skelinni. Fyrir utan hendur og fætur er það aðeins tilgátan hvað mögulega gæti birst okkur.

Danshöfundar verksins eru tveir, þær Isabelle Schad and Laurent Goldring en þær eru jafnframt dansarar í verkinu. Ljós og hljóð er í höndum Bruno Pocheron

Framleiðendur eru Isabelle Schad í samstarfi við CCN Tours, Espace Pasolini - Theatre International Sophiensaele Berlin, TanzWerkstatt Berlin. Verkefnið er auk þess styrkt af City of Berlin - Senatskanzlei Kulturelle Angelegenheiten, Fonds Darstellende Kunste e.V.

Þakkir fá Yara Burkhalter, Residence-Programme PACT Zollverein Essen

 

www.dancefestival.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is