Hrein ögrun á Reykjavik Dance Festival
föstudagur, 3. september 2010
A PROVOCATION PURE AND SIMPLE er titill sviðsverks ísraelsku danslistakonunnar Anat Eisenberg sem komin er hingað til lands til þess að kynna verk sitt á Reykjavík Dance Festival um næstkomandi helgi. Verkið, sem unnið er í samvinnu við- og flutt af danshöfundinum Sögu Sigurðardóttur, var frumflutt í Berlínarborg síðastliðið sumar og er nú meðal þess sem verður á boðstólum í fjölbreyttri og viðamikilli dagskrá á Reykjavík Dance Festival.
Anat Eisenberg vakti athygli á Íslandi fyrir nokkru er hún setti upp samsýninguna,,Víkinga & gyðinga" í Hafnarfjarðarleikhúsinu í slagtogi við danshöfundana Sögu Sigurðardóttur og Margréti Bjarnadóttur.
Nú leiða víkingur og gyðingur hesta sína saman á ný í nýstárlegu sviðsverki þar sem velt er upp spurningum um tilfinningauppeldi gegnum stafræna miðla annars vegar og sviðsupplifun í leikhúsi hins vegar. Verkið er flutt í tilbúnu tökuveri sem sett hefur verið upp á sviðinu með tilheyrandi grænskjá, viftum og kösturum, en með hlutverk aðalleikkonunnar fer Saga Sigurðardóttir.
Sýningar verða í leikhúsinu Norðurpóllinn á Seltjarnarnesi, laugardag og sunnudag kl. 20:00,
en glæsilega dagskrá hátíðarinnar má nálgast á www.dancefestival.is.
Nánar um A PROVOCATION PURE AND SIMPLE:
Á sviðinu blasir við myndarlegur "green-screen", á honum ljóskastarar, öflugar viftur og leikkona í samfestingi. Með því að kynna til sögunnar heim sem vísar staðfastlega í ímyndir úr afþreyingar- og poppmenningu, er hvatt til vangaveltna um samhengi og tilurð athafnar. Spurt er: Hvaða áhrif hefur poppmenning á skynjun okkar á lifandi viðburðum?
Hvaða mælistiku setur stafrænn veruleiki á það sem við upplifum sem einstakt eða athyglisvert?
Grænskjárinn stendur fyrir rými hins ímyndaða, þar sem áhorfendur varpa sínu hugarflugi á atburðarrásina. Hann undirstrikar gjána milli þess sem túlkað er á sviðinu og þess sem túlkað er í huga hvers áhorfanda.Að lokum er ekki spurt að því hver hafi skapað hvaða ímynd heldur hvaðan viðbrögð okkar við slíkum ímyndum spretti og hvað valdi þeim tilfinningum? Hvað er það sem skapar hughrif?