Falling in love with Nina
föstudagur, 3. september 2010
Ég geng veginn á enda. Ég geng alltaf sama veginn, þangað til ég kem út að enda. Þá sný ég við og geng til baka og sjórinn freistar mín.
Falling in love with Nina heitir nýjasta verk danshöfundarins Steinunnar Ketilsdóttur sem frumsýnt verður í Norðurpólnum klukkan 20:00 laugardaginn 4. september n.k. á Reykjavík Dance Festival. Flytjandi verksins er Katrín Johnson, dansari hjá Íslenska dansflokknum.
Steinunn er annar helmingur "Steinunn and Brian" sem unnið hafa saman síðan árið 2007 þegar þau frumsýndu verkið „Crazy in love with MR.PERFECT“, fyrsta verkið í þríleik þeirra um ástina. Verk númer tvö var „Love always, Debbie and Susan“, 2008 og síðast en ekki síst „The Butterface“, 2009. Verk þeirra hafa verið sýnd víðsvegar í Evrópu og í New York. Þessa dagana vinnur tvíeykið að verkinu "Steinunn and Brian DO Art: How to be Original" sem frumsýnt verður á Keðju Reykjavík í október.
Steinunn Ketilsdóttir útskrifaðist árið 2005 frá Hunter College með BA próf í listdansi og starfar sem sjálfstætt starfandi danshöfundur og dansari. Hún á í stormasömu ástarsambandi við dansinn en langar að halda áfram að stunda þessa listgrein þangað til hún verður gömul og krumpuð. Steinunn hlaut Grímuverðlaunin 2009 sem danshöfundur og dansari ársins fyrir verkið "Superhero" sem frumsýnt var á Reykjavík Dance Festival 2010.
Reykjavík Dance Festival verður haldið dagana 1.-5. september. Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið glæsilegri þar sem boðið verður upp á bæði innlend sem og erlend dansverk. Níu verk verða sýnd á hátíðinni, í öllum tilfellum er um frumflutning á Íslandi að ræða og þar af 5 frumsýningar á nýjum íslenskum verkum. Það er því sannkölluð dansveisla í vændum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Hægt er að kaupa hátíðarpassa sem gildir á alla viðburði eða miða á einstakar sýningar. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar á www.dancefestival.is eða í miðasölusíma: 857-7455.