Alþjóðleg málstofa um Dansverkstæði

fimmtudagur, 2. september 2010

Reykjavík Dance Festival og Samtök um danshús á Íslandi í samstarfi við Félag íslenskra listdansara og Leiklistar- og dansdeild Listaháskóla Íslands standa fyrir alþjóðlegri málstofu þar sem tilgangur og ávinningur af starfsemi Dansverkstæðis í Reykjavík fyrir listirnar og samfélagið verður ræddur. Framsögumenn í málstofu koma allir að rekstri Danshúsa eða Dansverkstæða í Evrópu og munu miðla til fundargesta sinni þekkingu og reynslu af slíkri starfsemi. Þeir eru: John Ashford sem er fráfarandi leikhússtjóri Robin Howard leikhússins í London og stjórnandi hinnar alþjóðlegu danshátíðar Aerowave, Anna Teuwen sem er dramatúrg og framleiðandi við Kampnagel Internationale Kulturfabrik GmbH í Hamborg í Þýskalandi, Carine Meulders sem er listrænn stjórnandi wpZimmer Dansverkstæðisins í Antwerpen í Belgíu og Halla Ólafsdóttir sjálfstætt starfandi dansari og danshöfundur.

Málstofan verður haldin á Fosshóteli Baróni, Barónsstíg 2-4, föstudaginn 3. september kl. 12:00-13:30. Að erindunum loknum verða pallborðsumræður og eru gestir hvattir til að taka til máls. Í kjölfarið verður gestum boðið að skoða húsarkynni Dansverkstæðisins í Reykjavík sem verið er að standsetja að Skúlagötu 28, gömlu Frón kexverksmiðjunni.

Nánari upplýsingar veitir Karen María Jónsdóttir, formaður Félags íslenskra listdansara og fagstjóri dansbrautar Listaháskóla Íslands, í síma 699 6903 eða á karenmaria@dance.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is