Eyjaskegg
miðvikudagur, 1. september 2010
Reykjavík Dance Festival 2010 kynnir dansverkið Eyjaskegg eftir Valgerði Rúnarsdóttur fimmtudagskvöldð 2. september klukkan 22:00 í Brimhúsinu á Geirsgötu 11. Eyjaskegg myndast við langvarandi nærveru við hafið. Rætur þess liggja djúpt og straumar hafsins toga stöðugt í okkur eins og þangið sem velkist um í flæðarmálinu. Get ég rakað mig?
Danshöfundur: Valgerður Rúnarsdóttir. Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Inga Maren Rúnarsdóttir, Ragnar Ísleifur Bragason, Sibylle Koell, Tanja Marín Fríðjónsdóttir, Tinna Grétarsdóttir, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir. Umgjörð: Guðný Hrund Sigurðardóttir, nemandi við leikmyndahönnun Royal Welsh College of Music and Drama. Aðstoð við umgjörð: Lukka Sigurðardóttir, nemandi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Ragnheiður Maisól Sturludóttir, nemandi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Þórey Björk Halldórsdóttir, fatahönnuður. Tónlist: Þorgrímur Andri Einarsson.
Höfundur verksins er Valgerður Rúnarsdóttir en hún hefur starfað undanfarin ár í Belgíu annarsvegar með hinum heimsþekkta Sidi Larbi Cherkaoui og svo með hinni íslensku Ernu Ómarsdóttur. Valgerður skipar einnig ásamt Aðalheiði Halldórsdóttur danstvíeykið Vaðal og hafa þær starfað saman frá árinu 2000. Þær hafa samið fjölda dansverka, m.a. fyrir Íslenska dansflokkinn og Reykjavík dansfestival. Þær voru tilnefndar til Grímunnar 2007 fyrir verk sitt Flest um fátt sem flutt var af Íslenska dansflokknum. Síðasta verk Vaðals Var það Gangári? sem frumsýnt var á Reykjavík dansfestival 2009 var sýnt á Höfn í Hornafirði og Flateyri í sumar við mjög góðar undirtektir.
Reykjavík Dance Festival verður haldið dagana 1.-5. september. Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið glæsilegri þar sem boðið verður upp á bæði innlend sem og erlend dansverk. Níu verk verða sýnd á hátíðinni, í öllum tilfellum er um frumflutning á Íslandi að ræða og þar af 5 frumsýningar á nýjum íslenskum verkum. Það er því sannkölluð dansveisla í vændum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Hægt er að kaupa hátíðarpassa sem gildir á alla viðburði eða miða á einstakar sýningar. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar á www.dancefestival.is eða í miðasölusíma: 857-7455.