“Þá skal ég muna þér Kinnhestinn” frumsýnt á fimmtudaginn
mánudagur, 30. ágúst 2010
Verkið “Þá skal ég muna þér Kinnhestinn” eftir dansfélagið Krumma verður frumsýnt fimmtudaginn 2.sept á vegum Reykjavík Dance Festival í Norðurpólnum.
Þetta er í fyrsta sinn sem dansfélagið Krummi kemur opinberlega fram en einungis tvær sýningar verða á verkinu þann 2. og 3. september. Dansfélagið Krummi samanstendur af dönsurunum/danshöfundunum Katrínu Gunnarsdóttur, Sögu Sigurðardóttur, Sigríði Soffíu Níelsdóttur og Snædísi Lilju Ingadóttur.
Verkið er innblásið af kvenskörungum Íslendingasagnanna en sérstaklega er einblínt á þær Bergþóru, Hallgerði, Helgu fögru og Egil. Þjóðsögur og samband manns við náttúruna fléttast saman við íslenskar klisjur sem tengjast kvenhetjum. Ólafur Jósepsson/Stafrænn Hákon semur tónlistina við verkið en Ingibjörg Sigurjónsdóttir myndlistarmaður sér um leikmynd. Búningar eru í höndum Nínu Óskarsdóttur.
Verkið er sýnt í Norðurpólnum 2. og 3. september kl 20:00 og deilir kvöldi með verki Ólafar Ingólfsdóttur. Miðasala er í síma 857-7455 eða á miði.is