Eins og vatnið
sunnudagur, 29. ágúst 2010
Eins og vatnið er dansverk fyrir einn dansara sem frumsýnt verður fimmtudaginn 2. september á Reykjavík Dance Festival, nánar tiltekið í Norðurpólnum klukkan 20:00. Verkið er hugleiðing um mátt hins milda, styrkinn í því að gefa eftir, taka við og hrífast með.
Höfundur og flytjandi verksins er Ólöf Ingólfsdóttir en verkið var unnið í gestavinnustofu í Reykjavík og Buenos Aires vorið 2010. Tónlistin er í höndum Ragnhildar Gísladóttur og um búninga og sviðsmynd sér Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
Ólöf hefur starfað sem danshöfundur, dansari og kennari síðan hún lauk dansnámi 1993. Meðal verka hennar eru hópverk af ýmsu tagi, sólóverk og staðsértæk (site specific) verk innandyra og utan. Ólöf hefur samið nokkur verk fyrir Íslenska dansflokkinn en flest verka sinna hefur hún sett upp undir merkjum Ólöf danskompaní. Verk hennar hafa verið sýnd á danshátíðum víða um heim. Ólöf hefur einnig unnið við leiksýningar, bæði sem danshöfundur og sem flytjandi. Ásamt Steinunni Knútsdóttur leiklistarkonu hefur Ólöf staðið fyrir árlegri Ördansahátíð síðan 2003. Ólöf er einn af stofnendum Reykjavík Dance Festival.
Reykjavík Dance Festival verður haldið dagana 1.-5. september. Dagskrá hátíðarinnar hefur sjaldan verið glæsilegri þar sem boðið verður upp á bæði innlend sem og erlend dansverk. Níu verk verða sýnd á hátíðinni, í öllum tilfellum er um frumflutning á Íslandi að ræða og þar af 5 frumsýningar á nýjum íslenskum verkum. Það er því sannkölluð dansveisla í vændum sem enginn má láta fram hjá sér fara. Hægt er að kaupa hátíðarpassa sem gildir á alla viðburði eða miða á einstakar sýningar. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar á www.dancefestival.is eða í miðasölusíma: 857-7455.