Digging in the sand with only one hand
laugardagur, 28. ágúst 2010
"Digging in the sand with only one hand" er verk þar sem dans, tónlist, söngur og sögustund tvinnast saman í eina heild. Verkið verður sýnt á Opnunarhátíð Reykjavík Dance Festival miðvikudaignn 1. september í Hafnarhúsinu. Höfundar og jafnframt flytjendur að dansi, tónlist og texta eru Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jóhannsson. Framleiðendur verksins eru Shalala og Dansand í Oostende, Belgíu.
Verkið var upphaflega samið fyrir Dansand hátíðina sem haldin var í strandbænum Oostende í Belgíu í júlí árið 2008. Síðan þá hefur verkið verið sýnt á óhefðbundnum sviðum, t.d. barnum "Sirkus" þegar Kling og Bang flutti hann til London, á Art Frieze 2008, í speglagarði í París á Villette Sonique hátíðinni, Royan á strönd á Les Grandes Traversees hátíðinni, Raffinere Charloirs danse í Brussel og nú síðast í leikhúsi í Udine á Ítalíu. Hugmyndin var fyrst sniðin fyrir strönd og sjó þar sem umhverfið var notað óspart en í kjölfarið var verkið að aðlaga að ólíkum sýningarstöðum.
"Sandurinn og sjórinn eru innblástur verksins. Dansinn er innblástur fyrir sögu og sagan innblástur fyrir dansinn. Sandurinn fékk okkur til að hugsa um gull og villta vestrið. Kúrekamyndir og spaghetti-vestrana góðu sem leiddu okkur svo til Skagastrandar sem er aðsetur Hallbjarnar Hjartarsonar, hins eina sanna kúreka Íslands og Kántríbæjar sem er hans Kúrekabær við sjóinn, við fjallarætur. Minningin um hann varð svo tilefni sögunnar. Hann lét draum sinn rætast þrátt fyrir mótbárur bæjarbúa sem vildu hann í burtu og fannst hann vera að gera Skagaströnd að athlægi. Sagan er þó fantasía og talar einnig um það þegar menn geta ekki hætt að byggja drauminn sinn. Á endanum vakna þeir upp við vondan draum og uppgötva að draumurinn er veruleiki sem þeir vilja ekki vera í . Verkið er í tveimur hlutum sem tengjast á undarlegan en jafnframt táknrænan hátt".
Dans og texti: Erna Ómarsdóttir
Tónlist: Valdimar Jóhannsson
Flytjendur: Erna Ómarsdóttir, Valdimar Jóhannsson