Soft Target
miðvikudagur, 25. ágúst 2010
Dansverkið Soft Target verður frumsýnt á Reykjavík Dance Festival þann 1. september næstkomandi. Um íslandsfrumsýningu er að ræða en verkið mun síðan halda til Þýskalands þar sem það verður sýnt í Ballhaus Ost leikhúsinu í Berlín en leikhúsið er meðframleiðandi að verkinu ásamt hinu íslenksa kollektívi Panic Productions.
"Ég sá þig og langaði til að tala við þig en það er aldrei nægur tími. Ég mun því ekki geta sannfært þig um neitt. Vitandi þetta þá er ekkert á milli okkar annað en óljós vefur skynjunar og við getum því einungis starað hvort á annað þar til það eina sem eftir uppi stendur er spurningin hvoru megin spegilsins stendur þú?"
Í náttúrunni getur verið lífsnauðsynlegt fyrir dýr að geta blandast umhverfi sínu. Fyrir bráðdýr að fela sig frá rándýrum og fyrir rándýr til að vera fær um að læðast upp að bráð. Dýr fara mismunandi leiðir til að blandast umhverfi sínu. Sum dýr notast við feluliti á meðan önnur dýr dulbúa sig sem eitthvað óspennandi eða hættulegt. Þekktasta dæmið um dýr sem að dulbýst er kamelljónið sem þrátt fyrir orðstýr sinn notar feluliti ekki til að felast heldur til að tjá skap sitt.
Danshöfundurinn Margrét Sara Guðjónsdóttir, dansarinn Johanna Chemnitz og textasmiðurinn Gordon Spragg, takast á við hugmyndina um "sjálfið" og brjóta niður það sem skilur viðfangsefnið frá áhorfandanum. Tónlist eftir Peter Rehberg.
Danshöfundur: Margrét Sara Guðjónsdóttir
Texti: Gordon Spragg
Tónlist: Peter Rehberg
Dansari: Johanna Chemnitz
Lengd: 45 mínútur