ÁKALL TIL HANDA OG FÓTA

laugardagur, 21. ágúst 2010

Föstudaginn 19. ágúst stóð FÍLD í samstarfi við ArtFart fyrir "flashmob-i" fyrir fyrir dansara og vini dansins á Lækjartorginu. Viðburðurinn var ákall danssamfélagsins eftir stuðningi almennings fyrir vinnurými og gátu allir mætt og sýnt stuðning í verki með því að sameinast dansinum á torginu.

Á næstu vikum er áætlað að Dansverkstæði - vinnustofa danshöfunda taki til starfa en það er fyrsta rýmið sérhannað með þarfir danshöfunda í huga. Mikilvægt er að fjármagn fáist til þess að klára verkið og var ætlunin með "flashmob-inu" að vekja athygli á dansinum og þeim málstaði sem verið er að berjast fyrir á þessu augnabliki.

Dansverkstæðið er fyrsti áfanginn í uppsetningu Danshúss á Íslandi og voru Samtök um Danshús á Íslandi stofnað þessu til stuðnings fimmtudaginn 12. ágúst s.l. í gömlu Frón kexverksmiðjunni á Skúlagötu 28, þar sem ætlað er að vinnustofurnar verði til húsa.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is