Raven á menningarnótt

miðvikudagur, 18. ágúst 2010

Í ágúst og september fjölgar í hópi Raven, þar sem í fyrsta skipti koma saman allir meðlimir hópsins og verða með ýmsar uppákomur.

Hópurinn mun sýna tvö verk á Menningarnótt, laugardaginn 21. ágúst í miðbæ Reykjavíkur. Verkið NEI eftir Hrafnhildi Einarsdóttur, sem var frumsýnt á Jónsvökuhátíð í júní, og verkið Hliðarspor sem er samvinnuverkefni dansaranna Hrafnhildar Einarsdóttur, Ellen Hörpu Kristinssdóttur, Eszter Göncz, Anna Axiotis, Clara Folenius og Brogan Davison.

Hliðarspor

Þar sem þú gengur niður Laugaveginn kemstu ekki hjá því að hitta kunnuleg andlit, hvernig bregstu við?

Danshópurinn Raven lítur á hversdagslegar aðstæður og hegðun í miðbæ Reykjavíkur.
Hópurinn mun færast á milli staða og setja upp verkið í mismunandi umhverfi.

Hliðarspor 1 verður sýnt kl.15:00 Ingólfsnaust
Hliðarspor 2 verður sýnt kl .15:30 Lækjartorg, strætóskýli
Hliðarspor 3 verður sýnt kl. 16:00 á Laugavegi við Hljómalindarreit

NEI

NEI er dúett í dulbúningi sólós. Tengingar staða, hugsana og framkvæmda sem tvær manneskjur hafa upplifað í sameiningu, líkt og samband sem svo oft hefur brotnað en þó lifað í gegnum það allt.
Af hverju heldur fólk að það sé öruggara að segja NEI við áskorunum?
Nýtur fólk þess að sjá spegilmynd lífs síns?
Er fólk hrætt við að skilja hvert annað?

NEI verður sýnt við Gallerí Crymo, Laugavegi 41a kl.14:00

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is