Hnoð sýnir Snoð - fyrsta læknadramað

fimmtudagur, 12. ágúst 2010

Kynsjúkdómar og heimsóknir til kvensjúkdómalæknis eru nýjasta umfjöllunarefni danslistahópsins Snoð, en kveikjan að verkinu var sú að Krabbameinsfélag Íslands boðaði meðlimi Hnoðs, fjórar vinkonur, í leghálsskoðun á síðasta ári. "Við fengum allar tilmæli um að mæta í skoðun í fyrsta sinn í fyrra þegar við vorum tvítugar, en félagið boðar konur í leghálsstrok á tveggja ára fresti frá þeim aldri til að finna hvort forstigsbreytingar eða leghálskrabbamein á frumstigi finnist," segir Ásrún Magnúsdóttir, meðlimur í Hnoð, sem mun frumsýna nýtt verk á listahátíðinni artFart, sem verður haldin í fimmta skipti 5.-22. ágúst.

Í framhaldi af því uppgötvuðum við hversu mikið feimnismál heimsóknir til kvensjúkdómalæknisins virðast vera og þannig varð hugmyndin að verkinu til, en það byggjum við á eigin reynslu og annarra, sem við höfum heyrt um og lesið okkur til um á Netinu," segir Ásrún og telur að þetta sé fyrsta íslenska læknadramað í langan tíma sem sýnt er á íslensku sviði. "Að minnsta kosti svo við munum eftir."

Ásrún er þeirrar skoðunar að skortur á umræðu sé helsta ástæða þess að enn þyki vandræðalegt að fjalla um kynsjúkdóma í íslensku samfélagi. "Þetta er allt svo bælt, skammarlegt og hallærislegt eitthvað og engu líkara en fólk haldi að það fái á sig einhvern stimpil ef það greinist með kynsjúkdóm sem er alls ekki tilfellið, öðru nær. Fleiri greinast heldur en margur gæti haldið, alls konar stelpur sem eru að hugsa um og ganga í gegnum sams konar hluti án þess að þora að ræða um það. Með verkinu viljum við varpa ljósi á akkúrat þá staðreynd." "Við erum ekki að reyna að hneyksla, gagnrýna eða halda einhverjum áróðri á lofti, heldur miklu frekar að vekja fólk til umhugsunar um þessa hluti og sýna fram á að þetta þarf alls ekki að vera eitthvert feimnismál".

Snoð verður frumsýnt í Smiðjunni, húsnæði Listaháskóla Íslands að Sölvhólsgötu 13, þann 19. ágúst næstkomandi og svo sýnt aftur dagana 20. og 22. ágúst. Nánari upplýsingar á www.artfart.is.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is