Stuttmyndakvöld

miðvikudagur, 11. ágúst 2010

Nemendur dansbrautar Listaháskólans frumsýndu í maí s.l. 10 dansstuttmyndir en dansmyndagerð er nánast óplægður akur á Íslandi. Var hér verið að sá í jarðveginn fyrir framtíðina og fóru nemendur brautarinnar hamförum þegar þeir þeystust um víðan völl stuttmyndagerðarinnar með spennandi og metnaðarfullar hugmyndir í farteskinu. Afraksturinn birtist nú augum áhorfenda í annað sinn og er ekki við öðru að búast að viðtökurnar verði jafn frábærar og síðast. Myndirnar eru mjög fjölbreyttar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Sýnt í Útgerðinni

Sýningartímar:
16. ágúst kl 20:00
17. ágúst kl 20:00

Miðaverð er 1.200 kr og er hægt að panta miða í síma 633 9444 og á www.artfart.is

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is