Take it Away!
mánudagur, 9. ágúst 2010
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir sýnir ásamt tveimur útskriftanemum úr P.A.R.T.S. þrjú sólóverk á ArtFart. Um íslandsfrumsýningu er að ræða en verkin voru áður sýnd í hinu virta leikhúsi Beursschouwburg í Brussel.
Verk Melkorku Take it Away –a quartet for a female dancer and three microphones er dansleikur sem fæst við raunveruleikafælni, einmanaleika og samskiptahæfni. Ráðgjafi við gerð verksins var enginn annar en hinn heimsfrægi Wim Vandekeybus.
Í nýjasta verki sínu Discount gerir Boglarka Börcsök tilraun til að afsanna þá algengu staðhæfingu að dansarar kunni bara að telja upp að átta.
Nestor García Diaz langaði alltaf til að vita hvernig dansverk lítur út að innanverðu. Svo hann ákvað að opna það og sá að þar var ekkert. The Secret for a Meaningful Piece er verk um skilning og skilningsleysi á dansi þar sem notast er við táknkerfi, tilvísanir og sýningarhæfni til að varpa ljósi á formið.
Sýnt á Norðurpólnum
14. Ágúst kl 20:00
Miðasala í síma 633 9444 og á www.artfart.is