JUST HERE!
laugardagur, 7. ágúst 2010
Persónulegt rými er það svæði sem hver einstaklingur lítur á sem sitt eigið. Innrás inn í þetta rými veldur oft óþægindum, reiði eða kvíða. Þetta er þó einstaklingsbundið og viðbrögð við slíkri innrás fara eftir því hver það er sem stendur á bak við hana. Okkur líður betur í kringum ákveðið fólk en annað. Og þó þú getir verið náinn ákveðnum aðila í ákveðinn tíma getur það seinna valdið pirringi eða jafnvel reiði. Í sýningunni er skoðað hvernig er hægt að færa okkar innra rými út í hið leikræna rými.
Höfundur: Snædís Lilja Ingadóttir
Flytjendur: Snædís Lilja Ingadóttir, Sandra Gísladóttir og Ravian Van Den Hil
Tónlist: Brynjar Ingi Unnsteinsson
Sýningin er hluti af leiklistarhátíð artFart ~ www.artFart.is
Sýningar verða í Útgerðinni, Grandagarði:
Föstudaginn 6. ágúst kl. 20.00
Laugardaginn 7. ágúst kl. 20.00
Sunnudaginn 8. ágúst kl. 20.00
Miðaverð er 1.200 kr. og hægt er að panta miða í síma 663 9444 og á midapantanir@artfart.is
Athugið einnig afsláttarkortin sem artFart býður upp á, sjá nánar á www.artfart.is