Dansinn dunar á ACT ALONE

fimmtudagur, 5. ágúst 2010

Dansinn mun ekki vanta á sjöundu ACT ALONE hátíðina sem haldin verður hátíðleg dagana 13. - 15. ágúst n.k. á Ísafirði. Á öðrum degi hátíðarinnar verður boðið uppá dansverkið LUZ eftir finnska dansarann Hennu Riikku Nurmi. Sýningin verður laugardaginn 14. ágúst í Edinborgarhúsinu og hefst kl.15.

Dansverkið LUZ sem þýðir ljós er leikur finnska dansarans Hennu að finnsku orðunum valo (ljós), varjo (skuggi), uni (draumur) og harha (missýning). Efnið í verkinu er sótt víðar m.a. í ljóð eftir J.R.R. Tolkien úr meistaraverki hans Hringadróttinssögu. Ljós og myrkur koma einnig við sögu og hversu mikilvægt það er okkur mannfólkinu. Hvað er í myrkrinu og hvað sérðu þar og heyrir….????

Að vanda er aðgangur að ACT ALONE ókeypis enda er hér um hátíð að ræða og mikilvægt að allir fái að njóta hennar til fulls. Sýningar á ACT ALONE dreifst víða sýnt verður á Ísafirði verða sýningar á Silfurtorgi í miðbænum, á Austurvelli þeim glæsta garði er stendur við hlið sundhallarinnar í Hæstakaupstað og loks í Edinborgarhúsinu. Á sunnudeginum falla öll vötn til Dýrafjarðar nánar tiltekið að Gíslastöðum í Haukadal en þar verður boðið uppá tónleika með Skúla Mennska. Nú er ekkert annað að gera en að taka dagana 13. - 15. ágúst frá og byrja að hlakka til einleikinnar veislu.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is