Dansarar í eldsnöggu steypiflugi
miðvikudagur, 4. ágúst 2010
Dansarinn Inga Maren Rúnarsdóttir mun halda vinnustofu á artFart í ár, undir Reykjavík Public Space Programme. Þar verður unnið með tækni hins heimsfræga David Zambrano Flying Low og Passing Through en Inga hefur nýlokið réttindaprófi í þessari danstækni undir handleiðslu meistarans sjálfs. Þessi vinnustofa mun bjóða upp á spennandi tækifæri fyrir dansara, danshöfunda og listamenn sem vilja víkka út hinn listræna og tæknilega ramma sinn.
Vinnustofan mun skiptast í tvo hluta:
1. Hluti
í fyrsta hluta námskeiðsins verður farið ítarlega í Flying Low tæknina og er námskeiðið sérstaklega fyrir dansara.
2. Hluti
Í öðrum hluta verður farið í Passing Through tæknina og rannsakað hvernig hún getur verið stökkpallur fyrir listræna vinnu í almenningsrýmum.
Verð:
1. Hluti: 10,000 ISK
2. Hluti: Ókeypis
Tímasetningar:
1. Hluti. 17., 18, og 19. ágúst kl 18:00 – 19:30
Staðsetning: Danslistaskóli JSB
2. hluti:: 17. 18. 19. ágúst kl 19:30 – 21:00
Þátttakendur eru hvattir til að taka þátt í báðum vinnustofunum, en einnig er hægt að sækja aðra hvora.
Nánari upplýsingar má finna á www.artfart.is eða í síma 8970496