Bristol Ninja Cava Crew á Villa Reykjavík
mánudagur, 26. júlí 2010
Bristol Ninja Cava Crew kom fram á Villa Reykjavík 15.júlí síðastliðinn. Performancinn var partur af röð gjörninga "Domains of Joyful Degradation" curata-ð af Kolbeini Huga Höskuldsson og Kling & Bang Gang.
Bristol Ninja Cava Crew samanstendur af Ingibjörg Sigurjónsdóttur myndlistarmanni og SigguSoffiu sviðslistamanni. Aðalsteinn Stefánsson sá um ljósahönnun en hljómsveitin Quadruplos gerði tónlistina. Verkið var sýnt í gamla Fiskkaup húsinu á Geirsgötunni í gömlum kæliklefa.
Meðal listamanna sem komu fram á "Domains of Joyful Degradation" má nefna Baldur Björnsson, Ingibjörgu Sigurjónsdóttur & SigguSoffíu(BNCC), Kolbein Huga og Munda, Lilju Birgisdóttur, Monicu Frycova, Sigtrygg Berg Sigmarsson og Unni Andreu Einarsdóttur.
Nánari upplýsingar um Bristol Ninja Cava Crew má finna á www.siggasoffia.wordpress.com
Upplýsingar um Villa reykjavík má finna á www.villareykjavik.com