Vaðall á Flateyri

miðvikudagur, 21. júlí 2010

Ferðalag Gangárans heldur áfram, að þessu sinni er stoppustaðurinn Flateyri. Mæting er svið pakkhússins, næstkomandi laugardag 24.júlí kl:17:00.

Það eru þær Vaðalssystur, dansararnir og danshöfundarnir, Aðalheiður Halldórssdóttir og Valgerður Rúnarsdóttir, sem hafa skapað heim Gangárans ásamt leikhúslistamanninum og ljóðskáldinu Ragnari Ísleifi Bragasyni.  En það var fyrir tilstilli Reykjavík Dansfestival 2009 að viðburðurinn leit dagsins ljós og í kjölfarið ákváðu þau að ferðast með verkið um landsbyggðina í sumar.  Verkefnið er unnið út frá sögu viðkomandi staðar og vinna þau því með sögu Flateyrar um þessar mundir, allt frá því þegar hákarlaveiðar hófust við Eyrina til dagsins í dag með öllum þeim sögum og lygasögum sem hafa vakið áhuga þeirra.

Áhorfendum er boðið í um klukkustundarlanga gönguleið um bæinn þar sem Gangárinn fræðir fólk um sögu staðarins, þótt leiðsögnin byggist að miklu leyti á sögulegum staðreyndum er engu að síður fært í stílinn og þau gefa hugarfluginu lausan tauminn.  Gönguleiðin er fyllt með misstórum gjörningum og senum sem glæða hið hversdagslega líf sem gerir það að verkum að mörk hins raunverulega og skapaða verða óljós.

Verkefnið byggist algjörlega á þátttöku bæjarbúa því hópurinn hefur fengið til liðs við sig fjöldann allan af listamönnum sem og áhugasömum einstaklingum, sem búsettir eru á Flateyri, til að taka þátt í viðburðinum.

Hópurinn hlaut listamannalaun, styrk frá Menningarráði Vestfjarða og einnig aðstoð frá Menningarmiðstöðinni á Höfn í Hornafirði til að gera ferðalagið að veruleika.  Svo er aldrei að vita nema haldið verði áfram að ferðast um landið á komandi árum, enda margir merkilegir staðir sem vert væri að sækja heim.

Félag íslenskra listdansara dance@dance.is www.dance.is