Þrír íslenskir dansarar útskrifast frá P.A.R.T.S
þriðjudagur, 20. júlí 2010
Þrír íslenskir dansarar, þær Melkorka Sigríður, Bára Sigfúsdóttir og Védís Kjartansdóttir útskrifuðust nýlega af Training Cycle brautinni í hinum virta dansskóla P.A.R.T.S í Belgíu. Skólinn hefur verið starfræktur í fimmtán ár og hefur nú þegar verið skilgreindur sem ein meginstoð dansskóla í heiminum. Námið býður upp á þjálfun í samtímadansi og hjálpar dönsurunum að mótast sem sjálfstæðir listamenn með því að gefa þeim innsýn í mismunandi form sviðslista. Þær kynslóðir sem koma úr skólanum taka þátt í að móta og skapa ríkjandi dansstefnu næstu ára þökk sé sértækri nálgun á viðfangsefninu, skilningi og meðvitund á líkamstungumálinu. Tekið er inn í skólann á tveggja ára fresti og sækja á annað þúsund manns um frá öllum heimshornum en aðeins 30 eru teknir inn. Einn íslendingur hefur áður útskrifast úr P.A.R.T.S en það er dansarinn og danshöfundurinn Erna Ómarsdóttir. - www.parts.be -