Saga og Friðgeir á LungA
mánudagur, 19. júlí 2010
Dans- og sviðslistamennirnir Saga Sigurðardóttir og Friðgeir Einarsson boða nú fagnaðarerindið fyrir austan Kjöl, en þau leiða skapandi hreyfi- og búgísmiðju;"Yes sir, I can boogie" á listahátíð ungs fólks á Seyðistfirði, LungA. Hátíðin fagnar tíu ára afmæli sínu um þessar mundir. 17 ungmenni frá Íslandi, Finnlandi og Danmörku taka þátt í smiðjunni, en afrakstur vinnunnar fær að njóta sín á uppskeruhátíð LungA á laugardaginn kemur. Búgi, eða “boogie” er upprunnið úr tungu Sierra Leone -manna í Afríku, og merki hreinlega “að dansa” og verður þessu hugtaki fagnað og því snúið á ýmsa kanta á Seyðisfirði þessa vikuna.
Nýtt fyrirlestrar- og performansverk Sögu og Friðgeirs, Off the Record – The Secret of Rock ‘n Roll, var einnig flutt í vikunni fyrir fullu húsi á LungA, í gömlum og glæsilegum sýningarsal samkomuhússins Herðubreiðar. Verkið unnu þau í vinnudvöl í Moderna Dansteatern í Stokkhólmi á vordögum, en næst verður það sett á svið í Reykjavík þar sem Sögu og Friðgeiri hefur verið boðið að koma fram á KeðjuReykjavik í október n.k.